Central, SC, USA

Elísabet in the dirrrty south :D

09.03.2009 05:38:21 / elisabet

Aloha Hawaii :D

Hversu yndisleg ferð með henni Kötlu minni:D Hawaii er með sanni sagt algjör gullmoli, mæli eindregið með því að skella sér þangað:D Er svo ótrúlega fallegt þarna, sjúkar strendur og alveg tær sjór langt út í sjó:D  reyndar sjúklega langt ferðalag, þannig allavega fara í viku til að jafna sig á því..hehe :D er alveg 10 tíma mismunur á Hawaii og Íslandi, þannig það var ekkert smá fyndið að finna tíma til að tala við foreldrana..hehe J

Við lögðum af stað um 6 leitið að morgni 28.febrúar og vorum komnar á hótelið klukkan 23 á Hawaii tíma, en 4 um nótt á okkar, þannig ferðalagið tók 22 tíma til að koma okkur þangað, fórum líka í 3 flugvélar, rútu og fleira skemmtilegt..hehe, fórum í 5 state á einum degi...South Carolina svo til Atlanta, þaðan til Chicago, svo til LA og að lokum Honolulu :D hehe ekkert smá mikið ferðalag, en það gekk vel og á einhvern furðulegan hátt nokkuð hratt, við skemmtum hvor annarri vel með bröndunum og rugli á leiðinni:D


Fyrsti dagurinn í Hawaii fór í að sanka af sér nóg af bæklingum og afsláttarmiður hér og þar:D Jóakim kann þetta..hehe, við skellum okkur svo í rölt um bæinn og fórum á ströndina í nokkra góða tíma, um kvöldið fengum við okkur besta Sushi sem ég hef smakkað, þetta er nottla freka nálægt Japan,þannig þeir kunna sitt fag svo sannarlega þarna:D


Mánudagurinn byrjaði með hvalaskoðun þar sem ég varð næstum sjóveik því það var svo mikill vindur sem fylgdi okkur alla ferðina, en við létum það ekkert stoppa okkur í neinu, sáum meira að segja svona 3-4 hvali, einn hoppaði fyrir okkur hátt upp og annar veifaði okkur, þetta var draumurinn hennar Kötlu að fara í hvalaskoðun þannig stelpunni fannst sko ekki leiðinlegt. Svo kíktum við á ströndina og tókum því rólegaJ Sama kvöld ætluðum við að skella okkur á Japanskt veitingahús, btw þá voru japanir út um allt og fullt af asíubúum, greinilega þeirra staður til að fara í frí..hehe vorum oft bara ég og katla og svona óteljandi asíubúar, en þau voru lítil og krúttuleg, skemmtum okkur vel :D já við sem sagt fórum inná veitingastaðinn og það varð allt svo undarlegt og vandræðanlegt að við enduðum á því að fara út af honum og skella okkur á Ítalskan..hehe, svo ætluðum við að taka djamm..en því miður var frekar aumt djamm á mánudegi..hehe greinilegt að Hawaii búar lifa líka eðlilegu lífi svona við og við..hehe! þannig við fórum bara heim í trúnó og svo var tekið How I met your mother maraþon öll kvöld ferðannar þegar við láum dauðþreyttar eftir alla ferðamennskuna okkar:D

Þriðjudagurinn fór allur í skoðunarferð, fórum næstum því í kringum alla eyjunum, lengst uppí föll og niður af ótrúlega fallegum ströndum, vorum í 7 tíma skoðurnarferð og fórum einnig í Pearl Harbor sem okkur fannst mjög merkilegt, tókum nóg af myndum af öllu:D sáum svona blow hole eins og í myndinni Fool´s Gold með Kate Hudson J svo enduðum við í mollinu og fundum Forever 21, ekki slæmt það og líka Mac búð, ég var í skýjunum:D og fórum svo á Bubba Gump sem er of góður staður, allur svona í þema Forrest Gump, Bubba var dúllu vinur hans muniði :D

Miðvikudagurinn byrjaði með Jet Ski sem Katla var ótrúlega fær á og við vorum skíthræddar að detta í sjóinn því að það eru baby shark alveg við ströndina í hawaii..hehe great! Svo fórum við snorkeling svona með gleraugu og öndunargaur og fit..það var rosa gaman, við vorum samt frekar hræddar þar sem maður var svo nálægt fiskunum, ég synti á risa stein og læti..hehe! Við vorum í snorkeling í Hanama Bay og þar var Elvis Presley myndin Blue Hawaii tekin upp, er viss um að mömmu þætti gaman af því J Við fórum líka framhjá þar sem 50 first dates var tekin upp með Adam Sandler..hehe:D
Um kvöldið fórum við á Luau sem er svona „fjölskyldu hátíð“ eins og þeir kalla Ohana (fjölskylda), þar fengum við Hawaiiískan mat, rosa flott Hula show og nóg af fínum kokteilum:D Við sátum á borði með pari sem var að fara í sama flugi heim og við daginn eftir, okkur fannst það svaka sniðugt..hehe
J

Fimmtudagurinn fór bara í að pakka og kíkta í smá búðir og við fundum ótrúlega girnilegt bakarí sem okkur fannst minna okkur svolítið á ísland, það var mjög gaman af því :D við keyptum okkur svona ekta Hawaii blómakrans og ég fann lyklakippu með Elísabet á Hawaiiísku, sem er ElikapekaJ

Hawaii búar eru yndislegt fólk, ekkert smá almennileg og nice, segja allir við mann Aloha hvar sem maður kemur og þau gera svona merki með aloha, setja þumalputtann og litla puttann upp og hina niður..hehe okkur fannst það fyndið, fólk í Californiu gerir það nefla þegar það segir Hang loose J

Ég set inn myndir í vikunni, það er sko alveg nóg af þeim og við vorum með eina underwater myndavél sem ég þarf að framkalla og skanna inn, því að við vörum með hana á jetski sem heitir sjóköttur samkvæmt mömmu hennar Kötlu..hehe og þegar við vorum snorkeling :D

Við tókum sem sagt ekkert alvöru djamm, bara smá bararölt og trúnó áfengisgleði inná yndislega hótelherginu okkar sem var ekkert smá flott:D við vorum engir smá túristar í þessari ferð, oft einar og krúttulegar með hóp af gömlu fólki..hehe :D Við vorum of oft að bösta okkur með störu á öll krúttulegu börnin þarna, mikið af blönduðum börnum sem er nottla of sæt:D svo vorum við líka farnar að dást óeðlilega mikið held ég af öllu krúttulega gamla fólkinu, hehe vorum alltaf að finna hvor aðra þegar við værum orðnar gamlar..vonandi verð ég svona hress og á djamminu í hawaii eftir 40 ár :D

Takk fyrir yndislega frábæra ferð Katla :D

knús á ykkur,

sakna ykkar of mikið :D

komið og talið við mig á msn og skype :D

love,

Elísabet:D


» 9 hafa sagt sína skoðun

17.02.2009 03:22:54 / elisabet

Hawaii babeí :D

Lífið leikur við mig:d hef svo mikið að vera þakklát fyrir :D sérstaklega að hafa vinnu ennþá, það er meira en margir geta sagt...svo á ég svo yndislegt fólk allt í kringum mig:D

Hawaii ferðin verður frá 28.feb-6.mars :D ég og katla eru að kafna úr spennu, erum búnar að plana að fara á jet ski, fara að kafa og skoða fallegu trópicala fiskana, klappa höfrungum og svona:D svo auðvitað kokteill á ströndinni, ekki hægt að hata það :D
Við náum einu kvöldi og 5 heilum dögum, rosalega langt ferðalag samt, svona 10 tímar í flugvél og við þurfum að millilenda, en hvað gerir maður ekki fyrir Hawaii..hehe verðum í Honolulu sem er á eyjunni Oahu :)

Ég er að fara að segja yfirmanninum á morgun að ég sé að fara, ekki búin að þora því..hehe, núna er að leggja í það,vonandi verð ég ennþá með vinnu..úffúff! annars ætti ekki að vera það mikið mál að redda sér vinnu á einhverjum öðrum svona stað ;)

Ég er ekki enn viss hvenær ég kem heim, fer allt eftir sumarvinnu, ég kem allavega í síðasta lagi 7.júlí heim:D þá er atvinnuleyfið mitt búið og ég þarf að vera komin úr landinu ;)

knús á ykkur,
love,
Elísabet:D

» 4 hafa sagt sína skoðun

28.01.2009 23:10:59 / elisabet

Ræktin :D

Ég og Katla vorum í ræktinni..loksins fer ég að hreya mig almennilega :D
erum að fara að kaupa okkur kort í ræktina sem gildir út maí og kostar aðeins $99, frábært tilboð...heitir Golds Gym, ekkert smá flott sko, hægt að fara í endalaust af svona tímum og svo er bíósalur með tækjum í, box salur, sauna, name it..það er allt þarna..hehe:D

Þetta er búið að vera mjög góður dagur því að við pöntuðum líka Hawaii ferðina okkar í dag:D leggjum í hann að morgni 28.feb og komum til baka að morgni 6.mars :D Fengum ferðina og fínasta verði og dollarinn lækkaði meira að segja niðrí 119 fyrir okkur, var nefla 130 bara f. nokkrum dögum..jejjj:D

Tyson og 2 aðrir strákar sem voru í swu eru að koma í heimsókn í kvöld og verða yfir helgina, kannski að maður kíki með liðinu út annað kvöld:D

Ég er svo að fara til LasVegas á fös. morgun, lendi þar klukkan 13:50 og hitti Thelmu mína og Íris klikk..hehe :D þetta verður yndislegt!! verðum í Las Vegas fram á sun.kvöld og keyrum þá til O.C., kíkjum svo í LA á mán og ég fer heim með flugi á eftirmiðdeginum á mán :D

það er sem sagt nóg í gangi, nema ótrúlega lítið að gera í vinnunni, vonandi eykts salan, annars er staðurinn ekki í góðum málum....

knús og koss frá mér,

ykkar,
Elísabet :D

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.01.2009 15:04:55 / elisabet

Komin aftur í gleðina :D

Jæja þá er ég komin aftur til yndislegu South Carolina :D
Jólafríið var of gott:D kannski aðeins of mikið í skemmtanakantinum..en það var samt sem áður yndislegt:D
Yfirmaður minn var ekkert smá glaður að sjá mig, knúsaði mig í bak og fyrir og sagðist hafa saknað mín svo svakalega...hehehe ekki slæmt að fá svona móttökur, þarf að halda áfram að vera dugleg í vinnunni :)
Við stelpurnar ætlum að kíkja á Overtime um helgina;) yeah!
Ætla að vera svaka dugleg að ferðast þessa önn:D

Fer í byrjun feb að hitta thelmu líklegast í Sacramento-San Fransisco og eitthvað í Cali.
Fer til Hawaii með Kötlu í lok feb-byrjun mars og kannski stoppum við einhversstaðar á leiðinni :D
Fer til Savannah, Ga einhverntíma.
Fer til Miami vonandi :D
Fer kannski til New Orleans í apríl :D
Fer til Chicago á heimleið í maí :D

Ég þarf bara að vera sjúklega dugleg að spara..þá reddast þetta allt saman..hehe:D

knús á ykkur,
love,
Elísabet:D

» 3 hafa sagt sína skoðun

16.12.2008 14:41:56 / elisabet

New York-Ísland :D

Ég verð í New York eldsnemma á morgun, fæ svo að hitta Fanney frænku og mömmu annað kvöld..hversu gaman verður þetta allt saman:D
er komin með svaka plan, þarf sem betur fer ekki að kaupa neinar jólagjafir, ætla bara að skoða og kaupa mér kannski eins og einn kjól..hehe:D
Planið er að kíkja í Rockefeller Center á fallega skautasvellið og fara í útsýnisturninn, fara í Central Park, fara í jólaland Macy´s , fara í gömlu fallegu dótabúðina sem er svo jólalega skreytt heitir Fao Schwartz, fara eitthvað heavy gott að borða...við ætlum að fara á Asian Cuba um kvöldið..er víst sjúkur staður, búin að patna borð og læti:D
Svo þarf maður aðvitað að kíkja í H&M, Urban, Forever 21, Mac og fleiri góðar..hehe:D

Þetta verður yndislegt, vona bara að ég týnist ekki..hehe!
Við erum á hóteli á Times Square þannig ég fer auðvitað og dóla mér eitthvað þar líka:D

Svo verð ég bara mætt til Íslands eldsnemma á fös. morgun:D jibbíí!!!

Hlakka svo til.....

bið endalaus bið....

Elísabet :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.12.2008 06:19:51 / elisabet

Ég er á leiðinni heim til mín..brátt!

Aðeins 9 dagar í brottför, ótrúlega er ég orðin spennt:D verður alveg hreint yndislegt í New York, finn það á mér :D
Er svo mikið skemmtilegt framundan núna...á morgun fer ég, Katla og Rosy til Greenville sem er næsta borg og ætlum að verzla svoldið, ætla ða reyna ða klára þessar örfáu gjafir sem ég á eftir:D svo á fimmtudaginn keyri ég Kötlu út á völl í Charlotte, NC og við ætlum að leggja snemma af stað svo við getum farið í mollið smá..hehe Urban Outfitters og Forever 21, það er ekki hægt að hata það:D svo verð ég bara að vera smá meira dugleg að vinna, skelli mér í klippingu og svo er ég eiginlega bara komin heim þar sem verður eintóm hamingja!
Get ekki beðið eftir að leika við fjölluna, kjarnakjöt, salómon, sigrúnu, kötlu, bíóstelpurnar...name it..þetta verður yndislegt:D það er nú þegar búið að plana djamm 19.,20.,26.1.,3. og 10.jan..hehe :) svo bætist alltaf eitthvað inní:D
Ég er komin í þetta þvílíka jólaskap, vildi að ég gæti skreytt eitthvað hérna úti en það er því miður ekki fjármagn til í skreytingar...alveg ótrúlegt að ég hef aldrei verið jafn fátæk en er samt að vinna..skil ekki alveg hvernig þetta passar..hehehe!
en maður verður víst að muna að maður hefur það mun betra en margir aðrir sem þurfa miklu frekar stuðning og hjálp á þessum kreppu tímum....

knús á ykkur,
ykkar spennta Elísabet :D

» 3 hafa sagt sína skoðun

01.12.2008 22:02:26 / elisabet

Kalli kóngur!

ÞESSI FÆRSLA ER TILEINKUÐ BESTU STELPUNNI....KÖTLU!
KATLA TAKK FYRIR AÐ VERA FRÁBÆRUST OG LÁNA MÉR ALLTAF BÍLINN ÞINN OG BJARGA MÉR SVONA ROSALEGA Í DAG:D
VONANDI VINNIÐ ÞIÐ NATIONALS!!!

ég kem heim eftir 18 daga..jibbíí :D er að rifna úr gleði:D
knús,
Elísabet:D

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.11.2008 17:14:37 / elisabet

Fúskara dagar...

Jæja þetta blessaða Thanksgiving break hefur ekki alveg verið að gera það hjá mér...var að vinna í gærmorgun og fékk reyndar þennan dýrindis mat til að taka með mér heim og sat svo ein heima allan daginn að horfa á one tree hill og chilla á msn, fóru nefla allir sem mér þykir vænt um eitthvað í burtu..smu smu!
Svo ætlaði ég að vakna voða hress í morgun og fara á black friday sale en var of þreytt þannig ég svaf yfir mig, fékk svo far til kötlu til að fá lánaðan bílinn hennar, þá var læst íbúðin og katla tók óvart lyklana með sér í sitt ferðalag þannig ég var eins og nörri læst úti og ákvað að fara í strætó í búðirnar, en allt kom fyrir ekki strætó gengur ekki á black friday...great! þannig ég fékk að rölta heim í 40 mín, sem var ekki töff og gat ekkert farið á fínu útsölurnar sem ég ætlaði að gera þessi svaðalegu kjarakaup f. jólin!
En ég mun ekki bugast, ég ætla að vakna snemma á morgun og fara með strætó í mallið þar sem ég þarf ekki að vinna fyrr en klukkan 5 :D já ég er nörd í strætó...hehe!
Jólagjafakaup eru aðeins farin af stað...hef nægan tíma:D Keyri Kötlu út á völl í Charlotte, NC þann 11.des og við ætlum í mollið fyrst og svo kíki ég örugglega til Atlanta einu sinni áður en ég fer heim og svo auðvitað 2 dagar í New York e. 19 daga:D verður ekki leiðinegt:D mamma var að segja mér að hún fékk flugið með mig heim þannig hún kemur og pikkar mig upp í NYC, þar sem Fanney frænka verður með mér og Margrét Rós og Rebekka Rut ætla kannski að fá að fljóta með líka:D verður æðislegt!

Er með svaðalega heimþrá, get ekki beðið eftir að komast heim og verð vonandi heima til 11.des og fer þá út með kötlu í gengum new york aftur:D

knús og kossar á ykkur:D
3 vikur í mig..jibbíí!

Elísabet :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.11.2008 16:39:02 / elisabet

Voðalega dugleg....

Ég var ekkert smá öflug í jólagjafakaupum í Atlanta á laugardaginn, keypti heila eina gjöf! hehe! Var voða spennt að fara í H&M og þá var bara ekkert sérstakt þar og svo varð þetta bara verr og verr með hverri búð þar til að ég gafst upp og horfði bara á stelpurnar verzla, hehe var ekki alveg í fílingnum. En ég mun komast í hann aftur innan tíðar:D Ætla að bíða aðeins og sjá hvort að dollarinn lækki ekki og skella mér svo af stað í kaupin, þar sem að gjafirnar verða í ódýrar kantinum þessi jólin verður maður að leita vel til að finna það besta á góðu verði :D

Það eru aðeins 30 dagar í mig..jejjj, enda er nóvember bráðum búinn og þá er bara eitthvað pínku eftir:D Ég er að vinna á Thanksgiving Day en ætla að fá frí daginn eftir sem er Black Friday til að geta farið á fínu útsölurnar sem eru alltaf á þeim degi :D
Ég má samt ekki missa mig þar sem ég þarf að flytja eins mikið og ég get heim um jólin því að svo flyt ég alveg heim í maí með 2 töskur, þetta verður einhver höfuðverkur, en þetta reddast alltaf einhvernvegin ;)

Ég sit hérna að nördast á netinu þar sem ég fer ekki að vinna fyrr en klukkan 3 í dag, maður verður að nota tímann að tala við vini og fjöllu :D maður getur ekki verið án þeirra..hlakka svo til að sjá ykkur öll:D sakna ykkar svo mikið, ótrúlega hvað maður fattar hvað maður á þegar maður er svona langt í burtu :D ótrúlega hef ég það gott með svona mikið af góðu fólki í lífinu mínu :D

risa knús sem verður brátt jólaknús..híhí

Elísabet jólabarn sem telur niður til jóla:D


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.11.2008 15:51:02 / elisabet

Lífið er svo fagurt:)

Jæja, ég gat ekki beðið lengur...byrjaði í dag að hlusta á jólalög..hehehe :) já ég veit, ég er óþekk, en ég er nú að fara til Atlanta með Kötlu í dag að kaupa jólagjafir, verð að koma mér í fílinginn :)
"ég hlakka svo til...ég hlakka alltaf svo til...." (Hildur þetta minnir mig of mikið á okkur þegar við vorum litlar og krúttulegar að hlusta á coka cola jóladiskinn..hehe)

uppáhaldsjólalagið mitt í heiminum er Handa þér með Einar Ágústi og Gunna..fæ án gríns svona fiðring í magann eins og þegar maður er ástfanginn...kannski er ég bara ástfangin af þessu lagi..hehe eða jólunum..það er spurning..hehehe!

Ég er aðeins byrjuð í jólagjafakaupum, byrjaði í Flórída með stelpunum og aðeins í gær líka..fínt að fá borgað í dollurum, þá þarf ég ekkert að pæla í neinu gengi, nota bara mína fallegu bandarísku seðla..hehe :D

Þar sem ég er svo mikill mathákur þá bjó ég til matarlista í gær þegar ég saknaði Íslands svo mikið....veii hvað ég er spennt að koma heim að borða svona ekta íslenska mat, sérstaklega fisk :D og svo allt þetta líka....

Sterkir með mjólk
Smárabíópopp
Lipton Iced tea
Kaffisúkkulaði
Fylltar lakkrísreimar
Kókosbar
Grape gos
Malt
Swedish fish gummie
Satay sósa
Grjónagrautur aka Fanney amma
Fajitas
Gulur smurfs
Drakúla brjóstsykur
Ávextir
Smoothie
Vanilla latte frozen
Frozen Cappuccino
Honey Mustard
Rjúpur
Lime Margaritas
Bacardi Razz
Pönnsur aka Madda amma
Ostapopp
Haagen Dazs kaffiís
Cheese Dip
Humarsúpa aka pabbi
Humar!!!
Ávaxtasalat aka mamma
Buff
Homemade pizza
Ostakaka, helst bláberja
Haribo nammi
KusKus
Hummus
Hnetur
Pez
Sænskir bílar
Pastabakki
Júmbó langloka
RPC
American Style
Nachos á Vegó
Kakó með marshmallows
Vanillu Kex
Piparkökur
Gullfiskar kex
Vesturbæjarís
Bæjarins bestu með öllu nema hráum
Íslenskt vatn

já ég veit, ég er hlunkur sem get ekki hætt að hugsa um mat..hehehe!!!
love it,
hlakka til að sjá ykkur eftir ca mánuð..knús!!!
Elísabet :D


» 8 hafa sagt sína skoðun

02.11.2008 14:53:38 / elisabet

New York babeí :D

Þá er það ákveðið, ég mun lenda heima á föstudeginum 19.des, beint í djammið og vitleysuna :D hehe maður hatar það ekki!

Ég legg af stað héðan þann 17.des og lendi í New York klukkan 8 um morgun og chilla með Fanney frænku fram á kvöldið 18.des, fæ að gista hjá henni eina nótt :D verður voða nice hjá okkur og svo förum við samferða heim til Íslands í sömu vél:D
Ég fer svo aftur út annaðhvort 4. jan með Hönnu, Thelmu og Gauju til Sacramento,Ca og ætla að fara til San Fransico, er svo nálægt, ef ég fer:D eða ég fer út 11.jan með Kötlu og við förum í gegnum New York og náum vonandi smá chilli þar:D kemur allt í ljós í sambandi við Cali og vinnuna og svona, vonandi get ég fengið að mæta 12. í vinnuna, ekki 5. eins og hann vill..hehe tala hann til!

Ég er að vinna á Thanksgiving Day,sem er á fimmtudegi, en ætla að reyna að fá frí þá helgi til að gera eitthvað skemmtilegt:)

Ég sakna ykkar rosalega mikið..styttist óðfluga í heimkomu :D

knús og kossar,
Elísabet :D


» 9 hafa sagt sína skoðun

26.10.2008 03:35:28 / elisabet

Blessuð sé minning hans....

Sorg liggur yfir þessari viku...pabbi hans Ara, Vilhjálmur Fenger, lést á þriðjudaginn..vildi svo innilega geta verið heima núna, hrikalega erfiðir tímar, maður getur ekkert hjálpað eða sýnt neinn samhug svona langt í burtu..ég verð bara að hugsa fallega til þeirra, hann er á betri stað núna, svo hrikalega sorglegt þegar svona gott fólk fer, hann var yndislegur maður.

En yfir í aðra sálma...

Til hamingju með afmælið um daginn amma og Sigrún ;)

Váá hvað yfirmaður minn er sjúklega stressaður á lífinu..hehe skemmti mér konunglega yfir að horfa á hann á hverjum degi..hvernig er hægt að vera svona!!! Ef það koma ekki nógu margir á staðinn á hverjum degi þá fer hann alveg yfirum....koma alveg slatti margir á hverjum degi sko...skil ekki af hverju hann er svona crazy, hehe!  Hann var um daginn að segja að hann gerir aldrei neitt skemmtilegt og ég sagði honum að skella sér út á lífið eða fá sér smá í aðra tánna og hann alveg..með hverjum á ég að gera það..ég svaraði ummhh með konunni þinni...hann setti um svona rosalega grettu og sagðist sko aldrei geta haft gaman með konunni..er eitthvað að..hehehe! Snarbilaður gaur frá Íran og hann hatar bandaríkjamenn svo sjúklega mikið, en vill samt aldrei fara heim aftur...einhvernvegin finnst mér smá mótsögn liggja yfir þessu öllu! Ég er búin að eignast vinkonu í vinnunni sem heitir Sarah og er frá New York, við ætlum saman út á Halloween..hehe:d mér finnst fyndið að eignast nýja vini þegar maður er orðinn svona stór..hehe!

Ég vinn sem sagt 6 daga vikunnar, fæ frí á miðvikudögum sem er fínt þar sem Katla er akkúrat í fríi á þeim dögum líka í skólanum, þannig að þetta eru góðir chill dagar hjá okkur:D Erum farnar að plana að fara til Atlanta fljótlega og fara í jólagjafaleiðangur, ég er reyndar aðeins byrjuð...búin að kaupa fyrir öll krílin og eitthvað aðeins meir..það er þægjó :D

Planið á næstunni er að fara til Shavanna(Georgia),Chicago, Miami, Hawaii og Las Vegas áður en ég flyt heim í maí :D fer vonandi eitthvað á Thanksgiving og svo er planið að fara til Hawaii og Las Vegas í sömu ferð sem verður í spring break :D Ef Thelma Dögg fer til Cali í janúar þá fer ég klárlega í heimsókn til hennar...ætli ég verð ekki bara að taka lán hjá mömmu og pabba til að geta gert þetta allt..hehe fer ekki mikið á þessum launum mínum..hehehe jújú þau hjálpa nú alveg mikið..borga leiguna og matinn og svona smá auka með :D

Núna ligg ég eins og dólgur uppí rúmi, nenni ekki að hreyfa mig því að mér er svo illt í löppunum eftir vikuna, ógeðis steypugólf og lélegu skór sem ég er á í ca 8 tíma á dag...ekki töff..en manni líður vel þegar  ég fæ launin mín næsta fös:D rosa nice, fæ tips á hverjum sun eftir vikuna og svo fæ ég laun borguð aðra hverja viku, þannig að ég er alltaf með lil some some in my pocket ;)

Sakna ykkar allra alveg svakalega mikið....bíð spennt eftir að koma heim í des sem verður líklegast í kringum 20.des, ætla að reyna að fá 2 vikna frí um jólin og koma heim í gleðina:D

Kiss kiss,

Elísabet elskulega ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.10.2008 17:06:11 / elisabet

Undur og stórmerki.....

ÉG ER KOMIN MEÐ VINNU!!!!!!
Jejj ég er svo spennt..fór út um allt í gær...búin að sækja um 18 vinnur og svo 19ánda vinnan sem ég sótti um var ég bara ráðin á staðnum:p
Lítið, nýtt og fallegt kaffihús sem heitir Friend's Café, er svona stór mynd af Friends inná staðnum, maður hatar það ekki :D Eigandinn er frá Tyrklandi eða eitthvað þannig, sagðist vera evrópskur, held að hann hafi fýlað mig svona svakalega mikið fyrst að ég var líka frá Evrópu..við verðum að standa saman á þessum erfiðu tímum :D hehehe!
Ég byrja í kvöld kl. 19 :D verð reyndar bara í svona klukkara í kvöld til að læra á allt og svo byrja ég almennilega á morgun í hádeginu, ætla að reyna að fá dagvaktirnar svona oftast, þá byrja ég klukkan 10 og er til svona 18-19 :D það er gourmet:D
þetta er líka hookah bar, svona vatnspípudæmi sem allir eru æstir yfir hérna úti :D
ég fæ fínustu laun, ca þús á tímann, það er mjög gott miðað við hérna í suðrinu :D
Ég er líka með frítt far í vinnuna, strætó stoppar rétt hjá íbúðinni minni og svo beint f. utan kaffihúsið og það kostar ekkert í hann..jejjjj:D gæti ekki verið betra:D
Núna er ég að fara að fá fullt af dollurum og þá get ég lifað lífinu enn á ný..hehe, geymt allar fallegu krónurnar mínar fyrir betri tíma ;)

H&M bíður mín í Atlanta og fleiri góðar og fallegar búðir þegar ég er búin að fá nokkrum sinnum útborgað, núna hef ég líka efni á jólagjöfum:D jejjj!! geta allir verið glaðir..hehe ;)

sakna ykkar alveg svakalega....
knús og kossar...
Elísabet :D

» 8 hafa sagt sína skoðun

10.10.2008 18:54:16 / elisabet

Atvinnulaus og eignalaus auli....ohhh

Frábært..ég er búin að vera í vinnuleit í meira en 2 vikur, fór nefla til flórída í viku og svo til tennessee í viku...var ekki mikið að leita þá..hehe en er búin að sækja um á 17 stöðum...á flestum er sagt að það vanti ekki núna en aldrei að vita...ohh eru samt svona ca. 5 staðir sem vantar á..vonandi fæ ég á einhverjum af þeim:D
fjöllan er komin með miklar áhyggjur af mér, segir mér bara að koma mér heim.....kem kannski heim mun fyrr í jólafrí ef ég fæ jólavinnu..ætla bara að stökkva strax heim og ég fæ jólavinnu:D kannski bara 1.des..never know...það er bara gaman, lengur heima í jólagleðinni :D
en ég gefst ekki upp..ég mun fá vinnu hérna úti og hana nú!! hehehe
þar sem ég á ekki neitt þá er ég ekki að tapa neinu þannig ég er ekkert mikið farin að stressa mig á þessu..er bara svoldið leiðingjarnt að fá endalaus nei...maður dettur svo úr gír við það..en þar sem ég er mjög hörð þá get ég þetta:D

Smá pæling...af hverju er ekki til bounty, smarties, mars, polo né maltesers í ameríku...það er eitthvað að þessu liði...hehehe eru að missa af öllu gourmet!

Til hamingju með afmælið Gauja og Hanna um daginn..þið eruð frábærar:D

hlakka til að koma heim og knúsa ykkur,
love ya,
Elísabet

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.10.2008 18:45:11 / elisabet

Flórídana....

Váá hvað var gaman hjá mér, thelmu og dagnýju á flóró..vorum á Brandenton sem er rétt hjá Sarasota, versluðum nóg og fórum á ströndina í Sarasota sem er unaðslega falleg..ekkert smá mjúkur hvítur sandur og tær sjór...elskaði þetta :D
við vorum sko að halda okkur og þetta var klárlega lífið :D
ekkert smá gaman að kaupa allt baby dótið f. litla krílið sem er að fara að mæta í febrúar :D ég varð smá veik og byrjaði að kaupa baby dót f. litlu stelpuna sem er að fara ða mæta hjá helgu lilju og ara í apríl :D
einn daginn hjá mér..gef þessu svona 6 ár þá er ég ready..hehehe ;)
ég er enn í vinnuleit, gengur voða illa...efnahagurinn er í jafn miklu rústi hérna og annars staðar..en ég á allavega pening fyrir mat og er ánægð í hjartanu..hvað þarf maður meira ;)
ég er að fara til knoxville, tennessea á mán-fim..mjög líklega...joshua var að bjóða mér þangað..algjört krútt:D hann er að fara að prufa fyrir eitthvað lið..vonum að hann komist í atvinnumennskuna..aldrei að vita :D
en þannig er mál með vexti að ég helda ð ég muni flytja alveg heim í byrjun maí og vinna um sumarið og skella mér svo í masterinn í hí og taka svo bara svona eina önn í skiptinám til köben þar sem ég er svo ástfangin af köben :D
hvernig lýst ykkur á það..hehe..loksins að koma mér heim:D
ég er byrjuð að kaupa jólagjafir, var svo fínt gera það með stelpunum þær bera þetta heim og svona..hehehe :D
en ég ætla ekki að kaupa mér neitt næstu daga og jafnvel vikur..bara bensín og mat, ok kannski líka vín..þarf ekkert meir ;) dollarinn er 112 í dag..sjæse..hvert er heimurinn að fara!!!
Katla átti afmæli í fyrradag..innilega til hamingju með daginn kalli minn:D
ég sit hérna í herberginu hennar í tölvunni þar sem ég er ekki komin með net né sjónvarp í íbúðina mína..hehe er svoldið mikið hjá kötlu og joshua..það er bara stuð :D

sakna ykkar alveg svakalega mikið,
knús og kossar á ykkur,
hlakka til að sjá ykkur í des...líklegast í kringum 11.des :D

Elísabet bjartsýna og hamingjusama...;) híhí

» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 965 dögum
Komin ALVEG heim:)
Myndir Nýtt